Þetta var frekar lítið spennó þáttur…Tess er að verða brjáluð á Dionne, Dionne hélt party og Tess átti eftir að fara yfir fullt af verkefnum en það voru svo mikil læti að hún fluði til Lance sem var rosalega sár útí Libby því hún skrifaði grein um hann og gerði hálfgert grín af honum…Alana hélt að Lance væri að gera grín að sér og var alveg brjaluð.
Lance var orðinn svo þreittu á þessu Alönu dóti að hann hringdi í símsvarann hennar og sagði að ef hún kæmi ekki betur fram við hann væri allt búið….Í endann fékk hann bréf þar sem hún baðst afsökunar og hann var alveg rosalega ánægður.
Susan og Karl eru enn að rífast um þetta upptökustúdíó…
Harold ætlar að gera heimasíðu…
Lou er að fara að setja upp einhverja listasýningu og þykist ekkert ætla að græða á því en enginn trúir honum.
Drew og Libby eru rosa happy og Steph er alveg að brotna niður greyið…

Þetta voru svona aðalatriðin….