Já, þá er kominn nýr Alan-Micheal. Ég var búin að lesa um það á www.soapcentral.com og tók þá eftir því að leikarinn heitir Michael Dietz, en það er sami leikari og leikur Dr.Mark McClaine í Glæstum vonum. Hann er nokkuð mikið á skjánum núna þar sem Jackie og Brooke gruna að hann hafi hjálpað Stephanie að gera sér upp hjartaáfall.

Leikarinn sem er búinn að leika Alan-Michael í 6 ár, frá 23.júlí 1990 til 21.júlí 1996, heitir Rick Hearst, en hann hefur einnig leikið í Glæstum vonum! Hann lék Whipple “Whip” Jones, en við sáum hann aldrei af því hann kom árið 2002 og fór þá aftur áður en þættirnir voru aftur sýndir hér. Eins og flestir vita sem horfa á Glæstar vonir var spólað áfram um tvö og hálft ár í fyrra.

En já, ég verð að segja að mér finnst mjög sorglegt að Rick skyldi fara og þessi sé bara kominn allt í einu núna, en eftir nokkra mánuði mun ég örugglega elska þennan!!

Bætt við 20. apríl 2007 - 16:30
Já, þetta á að vera Alan-Mich ael (aka Dr.Mark McClaine) …!