Jæja, það er nú ekki ætlunin að spamma inn korkum hérna, ef þið takið því þannig. Ég var samt að pæla, þegar maður hugsar til baka og pælir aðeins í því þegar Elle kom fyrst í þættina. Hún var þá eitthvað þvílíkt að reyna að spilla fyrir Izzy og Paul. Setti pillu í matinn hjá Izzy og gerði allskonar skandala til að skemma fyrir henni. En núna er hún alveg gjörbreyttur karakter, alltaf voða hress og góð stelpa. :) Annars var ég bara að pæla í þessu, þar sem ég gjörsamlega þoldi hana ekki fyrst þegar hún kom.

Hafið þið líka tekið eftir því hvað karakter hennar hefur breyst? :)

Kv AllaWhite:)