Mikið að gera hjá mér í dag eins og þið sjáið. Ég er búin að búa til kork fyrir Beverly Hills og Melrose Place saman. Ég ætla að leyfa þeim að búa hérna á sápuáhugamálinu a.m.k. til reynslu. Við vitum ekki hvort Skjár einn ætli að sýna allar seríurnar, en hér er þetta allavega komið í bili. Við sjáum svo til hvort þið notið þetta eitthvað.
Ef ekki tek ég korkinn í burtu. Einnig gæti það komið til greina verði sýningum á þáttunum hætt.

Njótið.
Karat.