Mér langar að segja smávegis frá þættinum í dag [25.jan.]…

Liljina kom aftur til David's og þau urðu öll geggjað ánægð=D..En Janelle og fjölskylda var að halfa party og daginn eftir það þá labbaði Dvaid til Bree og sagði við hana eitthvað að þau væru að drekka undir lögaldri og eitthvað þannig en þá kom Dylan hlaupandi út og fór eitthvað að “dissa” David. Síðan seinna þá braust Dylan inn til Bishop's fólksins og RÚSTAÐI ÖLLU! En Paul sá hann koma hlaupandi út en ákvað að ætla að gefa honum fjarvistarsönnun. Summer fór að heilsa Bree en auðvitað þá laug Bree alveg fullt að henni. Boyd var nú bara freaky í þættinum í dag..núna er hann sko algjörlega gengin af vitinu! Hann var eitthvað að segja við Summer að mamma þeirra [ sem er dáin ] ætlaði að hitta þau einhverstaðar úti í skógi:S..Hann er orðin klikkaður..Svo sá maður svipinn á Summer, hún var sko bara hrædd við hann! Síðan sagði Paul Lil að hann elskaði hana en hún neitaði honum og þau ætla að reyna að gleyma því að það hafi gerst.

Þetta fannst mér svona vera það mikilvægasta en ef þið einhverju við þetta að bæta þá endilega komið með það=D