Jæja.. loksins er þetta farið að ganga aðeins. Lucy og AM að fara að sigla frá Springfield, veit ekki hvað langt eða hversu lengi þau verða að… veit það samt að Brent fékk skilaboðin sem að ritari AM átti að fá.. hann eyðir þeim pottþétt!! Alex og Alan í essinu sínu sem “forstjórar” Spaulding enn á ný :P

Tangie sagðist skyldu fara út með Alan í mánuð til að testa samband þeirra… finnst það snilld :D Vona að þau nái saman núna!! Vanessa og Matt… ég á mynd í tölvunni minni hérna af Vanessu og hún er svo gömul á henni. Hlakka til að sjá þau eldast saman! :D Hann ungur foli og hún gömul og hrukkótt.. en ástin fer sínar eigin leiðir ;)

Eve að batna eða? Vona að þetta lyf virki til lengdar… Ed á það engan veginn skilið að missa Maureen og Eve.. og hvað þá Michelle!!

En ég er mjög ánægð með að Lucy og AM séu að fara að fá smá tíma fyrir sjálfan sig! Efa það nú samt að eitthvað gerist á milli þeirra, held að hún hafi sig ekki í það greyjið! :/