Hvað er málið með þennan gaur =/ Var að horfa á nágranna áðan, og ég bara þoli ekki þennan Paul Robinson! Hann er að eyðileggja öll sambönd þarna i bænum!.. t.d. eins og með Issy og Karl, og Lil og David =/ David er núna bara orðin algjör karlremba og eyðilagði allt fyrir Lil eins og sjá má úr þáttunum í síðustu viku. Í þættinum áðan þá hreytti Lil því útur sér að David væri heppinn að þau væru ekki skilin ! enda ekki furða, hann sí röflandi í Lil og Serenu. Af því að hann kom að Serenu og Scott (kann ekki að skrifa gælunafnið hans:P) í rúminu hennar serenu, ný búin að gera það. Ég meina, hún er nú ekki krakki lengur! kallinn ekki alveg að skilja það..

En hvað Izzy varðar.. hún búin að vera ríðandi hér og þar útum allan bæ með þessum Paul robinson. Svo trompast hún þegar Karl gistir heima hjá Susan.. jeeeminn :)