Ég gerist oft sek um að horfa á Glæstar rugglaðar svona á virkum dögum vegna þess að ég er ekki með Stöð 2 þar sem ég er á virkum dögum.

Ég sit hérna og er að horfa á þáttinn og ég er bara hneiksluð á henni Amber! Það vita allir að hún og Decon eru sálufélagar (nema kannski Bridget og Rick). Svo núna áðan er hún Amber eins og svo oft áður heima hjá Bridget og Decon með Eric litla og hvað gerir gellan? Jú hún háttar sig bara inni í stofu hjá Decon! Þar sem þeir feðgarnir sitja og eru eitthvað að spjalla. Þá stendur hún bara misvæðis í stofunni og vippir sér úr fötunum, er að vísu í bikiní undir þeim en mér er sama. Ég veit vel að þau búa við ströndina, en ég held að það hefði verið ágæt hjá henni að fara úr þessum fötum sínum bara inni á baði. Sérstaklega þar sem þau eru bæði að rembast við að trúa því að þau eigi góð hjónabönd.