Jæja ég er búin að vera að spekúlera eitt núna í solldinn tíma.. hvernig væri að búa til svæði fyrir lengra komna? Ég er ekki að meina að þetta þurfi að vera eitthvað svaka svæði, heldur bara svona eins og korkur þar sem að þú getur skrifað spoiler og spáð í því sem að þú hefur lesið þér til um eða séð! Það er t.d. verið að sýna One Tree Hill og The O.C. úti núna og margt spennandi að gerast.. gaman að geta fengið eitt lítið svæði til að getað talað um þetta. Þarf t.d. ekki að vera einn korkur fyrir hvern þátt heldur einn fyrir alla… En þetta er bara smá pæling í mér. Langar svo að getað spjallað um Guiding við þá sem að vita jafn mikið og ég og The O.C. og One Tree Hill við þá sem að eru að horfa á 3. seríuna!

Takk fyrir mig, Eva Jóa