Jæja, það er heldur betur slæmt hjá Brooke núna. Thorne er búinn að komast að því að hún elskar alltaf Ridge innst inni eftir að hafa heyrt hana segja það við Deacon í misheppnaðri tilraun til að fá þann síðast nefnda til að slíta hjónabandinu við Bridget. Thorne er ekki sáttur og þegar þátturinn í dag endaði var hann að hella sér yfir Brooke sem kom alveg af fjöllum. Reyndar skil ég ekki af hverju að hann var svona blindur fyrir þessu, ég hefði getað sagt honum þetta fyrir löngu!

Ég verð að segja að þetta er orðið svolítið þreytt efni. Ég hef ekki horft á Glæstar vonir í nokkur ár svo neinu nemi þar til nýlega og það er alltaf verið að fjalla um það sama; forboðna ást Brooke og Ridge og ævarandi ást hennar á honum. Þetta er alltaf það sama nema að núna er bara annað fólk að tala um það. Þetta er orðið svolítið þreytt!!!