Eftir þáttinn í gær þá velti ég því fyrir mér hvað myndi gerast ef að Marissa og Seth færu að draga sig saman í einmanaleik sínum … það þyrfti ekkert að vera alvöru skot, heldur meira svona plot þeirra á milli til að næla í sínar “sönnu ástir”:-)
Það myndi eflaust skila þeim árangri því að Summer og Ryan myndu átta sig á hvar hjörtu þeirra lægju og gleyma hinum stundarhrifningunum sínum …
Þetta væri líka skemmtilegt áhorfs því að það þyrfti að taka nokkura þætti í það að blekkja Ryan og Summer og að láta þau þykjast vera voðalega ánægð með þetta nýja samband:-) en svo myndi allt springa í loft upp eftir nokkura stund!
Það besta væri svo ef að t.d. Marissa væri sannarlega orðinn ástfangin af honum Seth og héldi því áfram að vera vesæl og óhamingjusöm … múhahaha!