Það er búið að vera eitthvað smá vesen í sambandi við kannanir síðustu daga. Ég hef þurft að hafna nokkrum því að það hefur bara komið einn svarmöguleiki fram. Ég er á því að þetta sé einhver villa í kerfinu. Ef þið sendið inn könnun og henni verður hafnað út af þessu þá endilega prófið að senda hana inn aftur. Það væri líka gott að vita hvað þið voruð með marga svarmöguleika svona sirka.
Ég er búin að láta vefstjóra vita af þessu og ég vona að þetta lagist fljótlega.

Karat