Ég get ekki annað en velt þessu fyrir mér því að meðan að jafnaldrar hans eru búnir að vera að koma sér áfram í lífinu, þá er Dylan alltaf á sama stað utan í einhverjum smástelpum (ekki misskilja mig, ég er dyggur stuðningsmaður Dylans og Bridgetar) …

Harley var á blússandi framabraut í löggunni þegar hún flutti og búin að finna sér lífsförunautinn og allt í lukkunnar velstandi …

Alan-Michael er þrígiftur (allt jafnöldrum eða eldri konum) og hefur verið nokkuð successful í viðskiptalífinu …

En Dylan greyið, það er eins og það hafi gleymst að láta hann eldast! Það sést alltaf (og sást) að AM og Harley eru eldri en Bridget, Julie, Hart, Kat og Lucy (held ég gleymi engum) en það er eins og Dylan sé í jafningjahópi þarna og líði hvergi betur … en hann er þó nokkurum árum eldri, því þau eru c.a. 19-20 en miðað við að AM, Harley og Dylan voru 18 þegar að AM kom í bæjinn þá ættu þau að vera amk 25 ára …

Veit að þetta er ekkert himin og haf sem þarna skilja á milli, en samt þá spyr maður sig af hverju Dylan hélt ekki áfram á sömu braut og hin 2 í stað þess að vera alltaf bara “unglingur”??