Nágrannar 29. Apríl Ég ætla að segja í aðalatriðum hvað gerðist í dag…

Izzy hringdi í Hoyland fjölskylduna til að láta þau vita að það væri allt í lagi með hana. Boyd og Summer voru glöð að heyra frá henni en urðu svo miður sín þegar hún vildi ekki segja þeim hvar hún væri.
Jack var meira á klúbbarölti með Oliviu, sem reyndi að tæla Jack til að vera með henni um nóttina. Jack neytaði því eftir að hann mundi hverju hann lofaði Lyn.
Sky trúði ekki að Scott hefði fengið viðtal fyrir listastyrkinn. Viðtalið hans Scott gekk illa en Sky viðtal gekk vel. Sjálfstraust Scott var eiginlega ónýtt þangað til að Toadie gaf honum nafnið Stringray. Toadie, Connor og Stuart voru spenntir yfir að hafa verið fyrstir til að bjóða í húsið. Lou neitaði boðinu en vildi svo taka því aftur seinna þegar hann fattaði að gjöldin voru byrjuð að hækka, þá neituðu þeir tilboðinu því að þeir vissu að Lou væri að hugsa um gjöldin og ætluðu að bjóða minna í það seinna.

Ég held að þetta sé svona aðalatriðin í þættinum í dag..