Þeir sem horfðu á Nágranna í dag hafa eflaust tekið eftir því að nú er Sky búin að lita hárið á sér ljóst. Við erum búin að sjá að minnsta kosti tvær myndir af henni nýlega hér á áhugamálinu þar sem hún er ljóshærð, svo mann grunaði að það færi að koma að þessu í þáttunum. Mér finnst það fara henni mjög vel að vera ljóshærð, enda er ljósi liturinn náttúrulegur litur leikkonunnar. Þegar Sky var í þáttunum þegar hún var lítil var hún líka ljóshærð. Ég spáði einmitt í það þegar hún kom svo aftur í þættina af hverju hún væri orðin svarthærð, hvort það ætti bara að líta fram hjá því að hún hefði áður verið ljóshærð. En það var greinilega ekki þannig. Sennilega var þetta gert til að gera hana líkari mömmu sinni, sem leit bara eiginlega alveg eins út.