Hefur einhver góður penni hérna áhuga á að skrifa smá grein um þær persónur sem eru núna í Glæstum vonum?

Ég hef ekki náð að horfa á þáttinn í smá tíma og er ekki alveg tilbúin til að skrifa þetta sjálf eins og er, en mig langar til að setja eitthvað smávegis um persónurnar í Glæstum vonum inn á Góðgætið hér á síðunni. Þá á ég við kannski bara nöfn, atvinnu, ástarmál, helstu vandamál, fjölskyldu eða eitthvað svoleiðis um hvern og einn.
Ef einhver nennir þessu getur viðkomandi bara sent inn grein um þetta, sem ég tek svo eitthvað úr og set í Góðgætið, viðkomandi fær að sjálfsögðu heiðurinn af þessum skrifum.
Einhver áhugasamur?