helstu punktar þáttarins í dag :)

Connor og Carmella finnast saman í sánu og er Rocco lítt hrifinn. Hann ætlar að senda hana til ítalíu og fer með Connor í ógnvænlega ökuferð honum til viðvörunar.

David hittir Chris. Já, hann er búinn að finna myndirnar af Serenu og er bálreiður. Hann fær heimilisfangið frá Sky með trega en fer svo með Serenu í eftirdragi og hefur í hótunum við Chris og hótar lögreglunni og tilheyrandi látum.

Harold hverfur. Eitthvað er enn að stríða honum og fer fjölskyldan á flipp þegar þau sjá að hann er horfinn. David og Lil fara á rúntinn og finna Harold á vappinu í uppnámi.

Joe telur Jack ekki hafa það sem til þarf til að verða smiður og er tregur til að ráða hann í vinnu hjá sér og eru Jack og Lyn svolítið vonsvikin með það..!
-axuz