áfram heldur jólastemningin! :)

David gefur Lil bestu jólagjöf ever en það er tveir bollar, sem passa víst í ættarstellið hennar og verður hún himinlifandi.
David kemur konu sinni aldeilis á óvart að þessu sinni en hann lýkur vinnu sinni fyrr en ætlað var og tekur fyrstu vél heim og getur því eytt jólunum með familíunni. Svo heldur hann áfram í leiðangri sínum með jólaskreytingarnar en vill ekki betur til en það að þegar hann stingur þeim síðustu í samband þá reynast tvö hreindýranna (skreytinganna) í ansi vafalegri stellingu. Lil: “No wonder Rudolph's nose is so red!” Snilld! :D

Stuart og Toadie sættast! Stuart og vinur hans úr hjólhýsagarðinum verða sáttir og reddar Stuart honum farmiða heim til fjölskyldu sinnar með hjálp frá Harold og hjálpræðishernum. Toadie er einmitt á kaffistofunni um þetta leyti og verður vitni að þessu góðverki Stuarts og heimsækir Stuart seinna um daginn með bjórkippu og póstinn hans Stuarts. Þeir enda á kaffistofunni í pílukasti og orðnir rosa góðir vinir aftur þar sem Toadie kallinn býður honum með sér heim í jólamat hjá familíunni sinni! ;)

Susan finnst hún fjarlægari Karli en nokkru sinni áður! Hún kíkir á gjöfina sem hún sá Karl fela um daginn þar sem hún heldur að þetta sé flaska en sér svo rándýrt og flott úr! Engu að síður er hún enn eitthvað óörugg og horfir á hana sem gjöf vegna samviskubits Karls heldur en jólagjöf og kemur clean með fjölskylduboðið sem á að vera heima hjá Libby og Ben en finnst þetta samt rangt.

Trixie er óörugg enda alltaf að sjá Lou bralla eitthvað útaf brúðkaupinu, en hún heldur að Lou beri enn einhvern hug til Völdu. Hún fer yfir á taugum en Lou nær að hugga hana í bili.
-axuz