Rosaleg jólastemning var yfir þættinum í dag enda jólin að bresta á þar á bæ og allir að undirbúa skreytingar og jólamatinn :D

Susan vill enn að þau karl fari til hjónabandsráðgjafa en Karl er eitthvað tvístíga.
Hún er víst að undirbúa eitthvað fjölskylduboð og ætlar að koma Karl á óvart en spurning hvernig hann á eftir að taka því.

Steph býður móður sinni Lyn, og Völdu í jólamat yfir til þeirra Max og taka þær því boði þó Lyn sé eitthvað treg til, enda í einhverri sálarkreppu og fýlar sig svolítið hjálparvana enda vön í hlutverki húsmóðurinnar sem gerir allt :D
Heima hjá Max ýjar Steph svo eitthvað ómeðvituð um barneignir við Max en þá fer hann aldeilis að stressast, enda ekkert hugsað út í það. Þau ræða málið en eru ósammála; Max vill ekki eignast börn en Steph vill það. En ákveða að salta málið sökum jólanna og ræða þetta seinna.

Taj er eitthvað smeykur við að líta á einkunnir sínar og þorir ekki að opna umslagið og tekur því frekar illa þegar Kartan og Connor gantast í honum. En hann opnar það á endanum og náði víst öllu kallinn :) Sama á við um Jack en samt virðist samviskan vera naga Taj varðandi svindlmálið (þó svo hann hafi ekkert svindlað..). Engu að síður ræða þeir Taj og Kartan saman seinna á kránni þennan dag (þar sem Taj var víst einn af þeim hæstu) og spyr Kartan hvort einhver tengsl séu milli árangursins hans Taj og stolna prófsins. Taj móðgast (enda með þetta á samviskunni að vita af prófsvindlinu og öllu því) en endar þátturinn stuttu eftir það :(

En annnars, mjög jólalegur þáttur og bara fínn ;)
-axuz