Jæja hvað finnst ykkur um Trixie? Er hún ekki bara búin að brenna út í skemmtanabransanum? Lou er greinilega mjög hrifinn af henni fyrst að hann er alltaf að hvetja hana áfram (fáránlegt með þetta búningsherbergi :P ). Mér finnst hún vera orðin frekar léleg, hún getur greinilega ekki skemmt ein. Og síðan endaði síðasti þáttur á því að hún biður Lou að giftast sér. Mér finnst það nú heldur snemmt! Hún er ný hætt með manninum sínum (sem vildi hætta með henni en ekki öfugt) og hún þekkir Lou nánast ekki neitt. Mér finnst bara eins og hún ætli að taka hann með trompi. Hvað finnst ykkur? Haldið þið ekki að Lou svari neitandi???

Karat