Jæja, nú hafa bæði Jenna og Nadine opinberað áhuga sinn á Buzz fyrir honum og karlgreyið er alveg agndofa. Jenna varð á undan og ég held að hún vilji aðeins ná í Buzz því hann er eini raunverulegi vinurinn sem hún á og allt annað er farið í köku hjá henni. Hann er því síðasta hálmstráið hennar. Nadine hefur ákveðið að nú sé að duga eða drepast, hún vill giftast Buzz aftur og ég held að tilgangur hennar sé mjög góður og hún sé virkilega orðin hrifin af honum aftur.
Hvað finnst ykkur, með hvorri ætti hann að vera?