Halló….. Ég ætla að segja ykkur eitt sorglegt. Þið sem sáuð ekki Nágrannaþáttinn á föstudaginn, þið VERÐIÐ AÐ LESA ÞETTA! Ég ætla aðeins að tala um þann þátt.
Sko, fyrst var sona piparsveinspartý eða e-ð sona, fyrir brúðkaup Toadie & Dee. Síðan var bara verið að undirbúa fyrir brúðkaupið. Loksins byrjaði brúðkaupið. Þau voru svo hamingjusöm. Brúðarmærnar voru Steph og einhver, ég veit ekki alveg hver hún er, kannski einhver sem tengist Dee eða e-ð. En allavega…..
Þegar THE WEDDING var búið bilaði limmósían, Lou ætlaði að keyra þau. Þannig að þau fengu lánaðan bílinn hans Connors. Toadie kom henni á óvart! Hann var búinn að “plana” brúðkaupsferð til Maldvíeyja í viku! Toadie talaði við Karl einhverntímann og hún fékk frí í vinnunni. En vegabréfin gleymdust, bróðir Toadie fattaði það (man ekki hvað hann heitir), þannig að hann og Stuart fóru á eftir þeim. Dee & Toadie voru að tala saman í bílnum. (Smá brot): Toadie: I love your smile. Dee: I love you. Toadie: Kiss me, wife. (Þýðing: Toadie: Ég elska brosið þitt. Dee: Ég elska þig. Toadie: Kisstu mig, eiginkona). Þetta var sona nokkurn veginn. Toadie var að keyra. Þau slepptu sér bara augnablik, en BÚMM! Bíllinn keyrði á e-ð skilti og hentist út í sjó. Þau voru á doldið miklum hraða. Hárið hennar Dee var bara út um gluggann (bara smá). Þatturinn endaði þannig að bíllinn var kominn í vatnið, en ekki í botn. Hann var doldið uppúr. Mánudagur: Toadie komst upp, en hann fann ekki Dee. Stuart og bróðir Toadie komu og leituðu með. Löggan kom og t.d. Angie, Kev, Libby, Susan, Karl og fleirri. Það var komið kvöld og hún fannst ekki allavega þennan dag. Toadie leið svo illa. Hann fann e-ð bréf sem var frá Dee. Hún skrifaði það daginn fyrir brúðkaupið.
Þetta er svona mestu aðalatriðin. Ég nenni ekki að segja frá þættinum í dag, allavega ekki núna. Ég vorkenndi toadie svo mikið. Á endinum á föstudaginn hélt ég að þau mundu bæði náðst upp allavega. En ef þið viljið vita um e-ð spennandi sem á eftir að gerast, skrifiði það þá bara hérna fyrir neðan.

Takk fyrir.