Í þættinum í gær sögðu Anna og Seth Summer frá því að þau væru byrjuð saman. Og ótrúlegt en satt þá tók hún bara vel í það.
En í endann á þættinum þegar hún settist á milli Seths og Önnu í sófanum, fór ég að velta fyrir mér hvort að hún væri kannski ekkert sátt og væri bara að reyna að vera eitthvað hress til að geta haldið áfram að umgangast Seth til að geta haldið áfram að reyna við hann?

Og svo er eitt annað, hvað er málið með Luke??? Hann er bara orðinn að einhverjum hálvita (og þá meina ég svona öðruvísi hálvita en hann var s.s. ekki töffari heldur er hann orðinn að einhverjum barnalegum gaur)