ÉG ELSKA ÞESSA ÞÆTTI!!! Hef engan rosa áhuga á Ryan gaurnum en allt það spennandi gerist við hann sem er nú bara fæint enda aðalkarakterinn. Seth er uppáhaldskarakterinn minn, enda sé ég pínu mig í honum (Nördinn með húmor), og er hann bara hinn mesti snilli. Marissa fer í taugarnar á mér, ekki karakterinn heldur bara hvernig leikkonan talar. Summer er skemmtileg og skemmtilega leiðinlegt hvað hún er/var leiðinleg við Seth.

Seth: I named my boat after you

Summer: Uh, who are you?

Svo er það pabbi og mamma Seth, Sandy og Kirsten sem eru bæði fín og góð en ekki í uppáhaldi. Julia Cooper er ömurlega leiðinleg og glötuð en það er svo gaman að horfa á hana vera tík.
Jimmy er enginn rosa karakter, enda er sama sagan um hann búinn að vera í gegnum alla þættina, orðinn pínu þreyttur á “Jimmy stal pening” sögunni.
Luke er eins og hver annar svona karakter, íþrótta gaurinn sem er leiðinlegur við aðalkarakterinn, en hann varð ágætur í mínum huga eftir seinasta þátt (Djöfull var það svalt þegar Ryan og Luke kýldu essa tvo gaura).

Svo fyrir þá sem horfðu á seinasta þáttinn verð ég að deila einni af minni uppáhalds setningu úr honum

“I heard his favorite show was ‘Dawson’s Crack'” Hahahahah…

www.The-OC.org <br><br>THE THREE SHALL SPREAD THEIR BLACKENED WINGS AND BE THE VENGEFUL STRIKING HAMMER OF GOD
When life hands you a lemon, squirt it in somebody's eye and run like hell.