Vá ég fíla Brooke Logan í botn.
Margir hata hana þvílíkt en mest hötuðustu persónurnar mínar eru Stephanie,Amber og Kimberly.

Brooke er hörku kvendi bara og lætur ekkert stoppa sig, hún reyndar gerir marga hluti sem verða henni smá til skammar en hún er heldur ekkert að láta orðróma og eitthvað að hafa áhrif á hennar líf. Svöl kona ;)

Ég þoli ekki hve Stephanie er alltaf að skipta sér af öllum málum, ástarmálum sona hennar og fleira. Ég gjörsamlega þoli hana ekki.

Amber er ömurlegur og vanþakklátur tækisfærissinnir. Allt nýtir hún sér, sér til góðs.
Með allar sýnar lygar, og alltaf talandi um nýtt líf og eitthvað. Mest fer í taugarnar á mér hvað hún notar varalitinn illa. Hann er alltaf svona langt út fyrir og í munnvikunum á henni í klessu.

Svo er það Kimberly sem fer mjög í taugarnar á mér hversu þvílíkt nice hún er. Svo saklaus ung stelpa, leikur allt eftir bókinni og er bara 2 MUCH fyrir minn smekk. Svona ekta stelpa sem fólk myndu segja að væri role-model. Klæðist fötum sem hylja það sem “hylja þarf” og er svo kurteis og allt.