Ég var að horfa á granna og geri mér fyllilega grein fyrir því að ég hef ekki séð alla en hvenær komu flick og stu heim?!? var ekkert mál gert úr þessu slysi við heimkomuna?!? á ég að trúa því?!?

Ástæða þess að ég spyr var að í gær þá hringdi steph í stu að spyrja um eitthvað og fékk svar eins og ekkert væri…ég stóð hins vegar í þeirri meiningu að stu og flick væru enn föst einhvers staðar út í afdölum…er eitthvað að slá saman hjá mér eða þeim?!?

En hvað er málið með hana susan? á hún ekkert að verða EÐLIleg aftur? ég verð nú bara að segja að ég sakna hennar og finnst þessi nýja útgáfa á henni óttalega pirrandi…

Er verið að undirbúa brottför Lous með þessum nýrnasjúkdómi? Ætli hann sé að yfirgefa okkur?!? það hefur nú alltaf verið hægt að treysta á að hann kæmi manni til að hlægja yfir þáttunum…það verður söknuður af honum ef hann fer:(