Verð ég nú að halda því fram að þátturinn í dag hafi verið einn sá svakalegasti í lengri tima. Þegar Brooke og Thorpe voru að rífast um skófluna og Jon var afbrýðisamur útí Hilde vegna þess að hún var að halda við stjúppabba sinn í staðinn fyrir hann.
Og þegar það kom í ljós að Nick hafði sængað hjá Eve og Ellen og litlu Sue, sem vill svo til að er aðeins 16 ára.
Fátt í mörgu litlu orði sagt, samtal Paul yngri og Spalding eldri var alveg svakalegt. Ekki mátti greina á milli hvort Quentin Tarantino hefði skrifað handritið eða ekki. En Harold og James enduðu saman uppí rúmi meðan mamma Harold stóð fyrir neðan og fékk vægt heilablóðfall að heyra ástarstunur þeirra tveggja.

Alltí einum ætlaði allt um koll að fara er síminn hringdi undir lokin, takk fyrir mig, ótrúlegt í einu orði sagt.

Haraldur, 43ára., Linux og Guiding light áhugamaður.