Hæ hæ

Munið þið eftir þessum þáttum?? Kræst!! núna er verið að sýna þessa þætti á sky one á daginn og ég man nú bara þegar þetta var á stöð 2 hvað manni fannst þetta ógeðslega flott og töff lið… ómægat hehehe þetta er bara glatað, algjör sápa má eiginlega segja. Fötin alveg hræðileg og hárgreiðslan engu skárri, samt eitthvað svo stutt síðan þetta var finnst mér.

Allavega fyrir þá sem eru með sky geta horft á þetta frá 14-15 á íslenskum tíma og svo er það endursýnt frá 8-9 morgnana eftir :)

Kveðja Malin sem gerir ekkert nema horfa á imban og bíða eftir að krakkanum þóknist að koma í heiminn :( :( :(
Kveðja Malin