Halló halló :)

Eins og flestir vita þá er búið að breyta þessu áhugamáli í “Sápur” en þetta var áður áhugamál um Nágranna :D

Ég verð að segja það að ég hef aldrei horft á Leiðarljós en er sá þáttur örugglega áhugaverður ! Þó finnst mér leiðinlegt að sjá að þetta áhugamál sé nú orðið aðallega um Leiðarljós.

Flestar greinarnar eru um þann þátt og er nú komið upplýsingarkubbur sem kallaður er
“Persóna mánaðarins í Leiðarljósi” er ekki frekar hægt að hafa t.d “Persóna vikunnar” þar sem fjallað er um einhverja persónu úr þá Leiðarljósi, Nágrönnum og Glæstum Vonum ??

Eins og ég nefndi áðan þá hef ég aldrei horft á Leiðarljós en hef fylgst með Nágrönnum og Glæstum vonum og finnast mér þeir þættir frábærir. Langar mér því að sjá fleiri greinar og umfjallanir um þá þætti en ekki bara um Leiðarljós (Hef ekkert á móti þeirri sápu og er ekki að reyna að vera með nein leiðindi) :)

Getum við ekki sent inn meira efni um Glæstar vonir og Nágranna áður en þetta verður gert að Leiðarljós áhugamáli ?


kær kveðja, með von um góð viðbrögð Steffi H.