Ég get talist til þeirra sem horfa á þættina nágranna, maður horfir á þá í hádeginu yfir matnum. Það er alveg merkilegt hvað það eru lélegir og metnaðarlausir leikarar sem fengnir eru í það að leika í þessu þáttum. t.d hún flick er alveg skelfilegur leikari hún hefur útlitið með sér og allt það en þessi leikur hjá henni er alveg skelfilegur og svo systir hennar steph hún er meira að segja enn verri… svo fynnst mér þessi þáttur svo eitthvað óraunsær td. þá eru allar persónurnar annað hvort á kaffi kránni eða pöbbnum. Alltaf drekkandi bjór á kvöldin á pöbbnum, það gerir enginn heilvita maður það. Svo er kannski morgunmatur hjá skully fólkinu og svo stuttu seinna er klippt og þá er einhver úr skully ættinni að fara á kaffistofuna og fá sér eitthvað gott í gogginn hjá harold.. nenni ég ekki að telja upp meira í bili… komið þið með eitthvað… af nóg er nú að taka!!!