Þetta var rosalegur endir á þættinum í dag…Þátturinn var allur um brúðkaupsundirbúninginn hjá Steph.
Lyn var að fara á taugum þó svo að allt gekk vel, susan var að hjálpa henni ásamt því að Connor var að létta mikið undir hjá þeim. Ástin blómstrar hjá Michelle og Connor en þau eru að fela það frá hinum. Flick er ekkert smá grunsamleg þar sem hún er alltaf með fýlusvip (sem gerir mig alveg hoppandi vitlausa af reiði. Steph varð mjög sorgmædd þegar hún frétti að hún væri ekki ólétt og hún sagði Mark og mömmu sinni það.
Svo kom brúðkaupið, ekkert smá flott en Mark var að hugsa eitthvað rosalega mikið. Steph var ekkert smá falleg þegar hún labbaði að altarinu og allt gekk vel og enginn mótmælti því að þau myndu giftast, ekki einu sinni Flick. Þegar Steph var að taka eiðinn var Mark eitthvað tvístígandi en svo þegar hann átti að fara með eiðinn sagði hann að hann gæti ekki gifst henni og þá var þátturinn búinn ;(

Ég var alveg hoppandi vitlaus þegar þátturinn var búinn, en ég vorkenni Mark því að Joe á eftir að drepa hann ;)

kveðja asley