Um daginn fór ég til frænku minnar sem er með sky sjónvarpstöðvarnar (breskt system). Fyrir tilviljun lenti ég á sjonvarpsstöð sem var að sýna nágranna, og þeir í Bretlandi eru meira en ári á undan okkur.
Strax í byrjunarstefinu fékk ég sjokk, þar var enginn Hancock manneskja, engin Steph Scully, engin Flick, enginn Drew og það var engin Elly eða Tad en alveg fullt af nýju liði. En þetta var bara byrjunarstefið, þátturinn átti eftir að hafa í kjölfarið með sér fullt af óvæntum senum.
Drew var dáinn (Það er sorglegt, hann var fín persóna). Libby var hætt að skrifa og orðin kennari!!! Jack Scully sem er núna að spila fótbolta, var kominn og var í þessum þætti að halda fram hjá kærustinni sinni. Það kom líka fram að Susan Kennedy var nýbúin að lenda í slysi og missa minnið.
Enn allavega….. þetta var risa spoiler fyrir mig.