Hvað er með þessa stelpu sem flutti fyrir neðan Libby og Drew, ég man ekki hvað hún heitir. Þetta er stelpan sem varð til þess að Drew handlegsbrotnaði og getur ekkert unnið. Nú er Darcy að reyna við hana og hann kom við hjá Libby fyrst og hún var með glóðurauga eftir að Drew sló hana óvart með gifsinu og Darcy sagði henni frá því og nú heldur hún að hann lemji hana bara og heldur að það sé heimilisofbeldi í gangi hjá þeim. Darcy reyndi að segja henni að þau væru mjög hamingjusöm og hann vissi ekki um neina sem væru svona ánægð, en þá sagði hún að það væri einmitt svoleiðis sem fólk næði að fela heimilisofbeldi. Ég þoli ekki þessa gellu, hún er allt of afskiptasöm.
Brostu framan í heiminn og hann mun brosa framan í þig…..