Já þá er það sannað að hún Serena er mesta glæpakvenndi. Hún hefur verið að stela lyfseðlum á læknastofunni til að selja þá. Darcy hefur ennþá tröllatrú á henni en Karl er alveg búinn að fá nóg. Hún hefur sammt ekki viðurkennt að hafa selt þá, heldur segir hún að þeim hafi verið stolið. Þannig að það er spurning hvenær upp um hana kemst og hvenær Darcy missir trúnna á henni eða hvort það gerist einhvern tíman? Ætli Karl haldi ekki áfram að þrýsta á hana til að reyna að hrekja hana í burtu. Svo er bara að býða og sjá hvenær hún lætur undan og fari eða viðurkenni allt saman. Þvílík spenna! :D