hæhæ ég missti af byrjuninni á neighbours í dag en það sem ég sá var svolítið spennandi!!
Darcy sagði Susan og Karl að HANN hefði hætt við samninginn útaf fjölskylduböndum, Karl sagði við hann að hann vildi samt ekki vinna með honum og fyrst Darcy væri hættur við þá skyldi hann kaupa Karl út því hann væri hættur!!!Darcy talaði líka við Dee og baðst afsökunar!!mikið rosalega fer hann Darcy í pirrurnar á mér!!
Leo er alltaf að bralla eitthvað og Matt ákvað að elta hann.
Susan sá fleiri ritgerðir sem höfðu verið copyaðar og náði uppúr stráknum sem sagðist hafa skrifað hana að Leo seldi ritgerðir á 15 dollara stk.
Susan fór heim til Hankoks og Evan trúði þessu ekki, en sagði svo að Leo ætlaði til einhverja nýrra vina eftir skóla en hann vissi ekkert hverjir það voru. Þá var sýnt frá því þegar Matt elti Leo og svo kom svona hissa svipur á Matt og þátturinn búinn!!!

Það verður gaman að horfa á morgun og sjá hvað Leo er að bralla : )

Kveðja asley