Jæja þátturinn byrjaði á því að Maggie og Evan voru að róta í skápnum hans Leo og hann kom að þeim.
Hann var eiginlega ekkert reiður, en þau náðu ekki upp úr honum hvað hann væri að bralla.
Leo skrifaði ritgerðir fyrir tvo gaura en þær voru alveg eins, Evan fór til Susan og sagði að sá sem stæði að baki við þessu ætti að vera vísað úr skóla.
Harold bauð einhverjum strák að gista og Paul var ekkert ánægður, en svo kom þeim ágætlega saman.
Harold ætlar að halda fund með öllum í nágrenninu útaf athvarfinu sem hann vill hafa heima hjá sér, en enginn þorir að segja neitt nema Maggie.
Þátturinn endaði á því að Karl kom í skólann til Susan og sagði að hann ætlaði að láta Darcy vinna, sem sagt Karl ætlar að selja stofuna……

Þetta var ekkert afskaplega spennandi þáttur en ég vil endilega að þetta áhugamál lifni við þannig að…..

Kveðja asley