Ég vorkenni honum Lou svo mikið að ég er að deyja. John Allen er alltaf að heimsækja Lolly og Lou er ekki að fíla þetta. Tad og Flick kysstust, eftir það varð Tad afprýðisamur ef einhver gaur talaði við Flick. Evan og Maggie eru að verða vitlaus á að giska hvað Leo er að bralla. Það sást reyndar í þessum þætti að hann var að ljósrita blöð og lét einhverja gaura fá þau, þannig að hann er ábyggilega að læra heima fyrir þetta fólk.
Þátturinn endaði þannig að Evan og Maggie stálust í skápinn hans Leo í skólanum og hann Leo kom að þeim…

Nú verður allt brjálað heima hjá Hankoks :)
Það verður líka spennandi að sjá hvað skeður hjá Flick og Tad.
En mest er ég spennt og kvíðin útaf Lou og Lolly (þótt hún sé leiðinleg greyið)

Kveðja asley