Ég ætla aðeins að segja frá henni Holly Valance sem leikur Flic í Neighbour á stöð tvö en hún er komin út í sönginn núna. Hún er fædd þann 11. maí eða sama dag og ein vinkona mín ( voða sniðugt) nema Holly er bara fædd 1983 svo þið getið reiknað nú er 2002 þannig hún er 19. Hún býr í Brighton í Ástralíu og er svona eins og hún Kylie sem lék einnig á sínum tíma í Neighbours. Nú hefur komið tvö myndbönd frá Holly eða allavega hef ég bara séð tvo sem heita kiss kiss og down boys, einnig er líka komin geisladiskur frá henni en það er nú ekkert svo stutt síðan hann kom út. Holly elskar að syngja og hefur sungið síðan hún var fjórtán ára. Hún elskar að fara á veitingastaði og bari með vinum sínum og labba eftir ströndinni í heimabæ sínum. Mamma Hollyar heitir Rachel var fædd í bænum Southampton í Englandi og flutti til Ástralíu þegar hún var fimm ára. Pabbi Hollyar sem heitir Ryko. Holly á tvær yngri systur - Coco sem er fimmtán ára og Olympiu sem er níu ára. Áður en hún lék í Neighbours og varð söngkona vann hún við ýmis störf.
Kv.Halla