Ég verð að viðurkenna það að ég sjálfur mundi aldrei láta mér detta það í hug að haga mér eins og Darcy er búinn að láta, að fara svona með stelpurnar og Karl!
En það er annað sem fer mjög í taugarnar á mér, Það er hvað Dee getur verið ömurlega blind og það að hún skuli ekki fatta það sem Darcy er að gera, ég meina hversu heimsk getur hún eiginleg verið!!!
Af hverju spyr hún bara ekki Tess að þessu öllu saman? (Þær verða hvort eð er að fara að koma sínum málum á hreint)…Ástæðan er einföld, hún er bara ekkert að sjá þetta. Hún er bara eitthvað svo seinheppin alltaf.
Og svo er ótrúlega fyndið hvað hún er svipuð í alvörunni, Þarna þegar hún lenti fyrir rútunni, þar sem hún og aðrar stjörnur voru saman komnar á góðgerðarsamkomu, og ekki nóg með það að verða fyrir rútunni, þá var hún rænd 200$ þar sem hún lá meðvitundarlaus, er hægt að vera seinheppnari.
Típískt fyrir Dee, ég gæti vel séð hana fyrir mér lenda í einhverju svona svipuðu.
OK! Darcy er slæmur en eru Dee og Tess ekki bara að kalla þetta allt saman yfir sig sjálfar????