Og þar fór það! (01.08.2002) Jæja, Flick flutt út frá Joel og allt fallið aftur í ljúfa löð hjá Skully fjölskyldunni, ég hef tekið eftir því að Joe er allur orðinn miklu rólegri yfir öllu saman eftir að Flick flutti og hann er meira að segja farinn að segja brandara! Vonandi breytist það ekki þó að hún sé flutt heim aftur ;)

En það voru nú ekki allir á eitt sáttir við fluttning Flick. Joel kom heim í dag og þegar hann komst að þessu var hann alveg brjálaður og sakaði Toadie og Dee um að hafa hrakið Flick á brott. Persónulega fannst mér Flick alltof mikill krakki til að flytja að heiman og hún var greinilega sammála og flutti aftur heim. Þegar Joel náði loks tali af Flick daginn eftir var hann alls ekki ánægður og skammaði hana fyrir að flytja út, nú væru þau ekki saman lengur bla bla bla, en það skipti hann miklu máli. Ætli að þau slíti þessu ekki endanlega á næstu dögum. Þetta hefur nú verið frekar skrautlegt samband og Flick er alltaf að tala um hvað Joel elski sig mikið og Steph fannst það nú bara fyndið. Hver veit nema hún og Matt fari eitthvað að dúlla sér saman í framhaldi af þessu Elvis ævintýri, það er a.m.k. minni aldursmunur á þeim en henni og Joel!

Ps. Af hverju fær Paul ekki að spila? Hvað gerði hann? Djöfulsins fífl þessi þjálfari!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _