Miðvikudagurinn 31 júlí
Hér er það helst sem gerðist í þættinum í dag.


Tess hafði skrifað bréf til Dione þar sem hún hafði sagt alla söguna um hana og Darcy. Hún sasgði Darcy frá bréfinu svo hann rétt svo náði að stela því áður en Dione náði að lesa það.

Dione grunar ekkert illt um Darcy og telur hann vera hinn fulkomni maður.

Susanne er að ráðleggja Libby um matarræði og hollustu vítamína og kalks . Hún kaupir mat fyrir hana og Drew og eldar ofan í þau líka. Mamma hans Drew er líka með áhyggjur af því að Libby sé ekki búin að fara í sprautu gegn rauðumhundum þannig að þau eru að klikkast á afskiptasömum ættingjum.

Harold ætlar að taka þátt í veiðikepninni en ekki að drepa fiskinn og hann hefur fengið Dee í lið með sér.

Lou meiddist eitthvað í bakinu við að skipta um dekk og Harold hefur verið að hjálpa honum.

Lyn ætlar að stofna hárgreiðslustofu heima hjá sér og er þegar byrjuð að klippa þó að hún hafi ekki enþá feg-ngið leifi til að vinna gegn launum.

Darcy er búinn að f+á Carl til þess að fara á einhverja ráðstefnu og það eru greinilega einhver brögð í tafli hja´honum þar sem þátturinn endaði eitthvað skuggalega þar sem hann er að hringja í einhvern vin sinn og sagði honum að hann sé búinn að sannfæra Carl að stækka stofuna og gera hann að meðeiganda eða eitthvað þannig. (ég held samt að það sé ekki í myndinni. Ég skildi þetta ekki alveg.)

Allavegna ég held að þetta sé svona nokkurn vegin allt.