Er Shell búin að redda málunum? (26.07.2002) Í þættinum í gær tók Michell stóra ákvörðun. Flick var búin að segja henni hvað hún væri blönk, óvelkomin „heima" hjá sér og að Joel hefði ekkert samband. Þannig að þegar Flick kom í heimsókn í gær og fór að rífa sig við Joe (sem mér finnst hafa orðið miklu betri í skapinu eftir að Flick flutti út!) þá sagði Shell henni bara að halda kjafti og kyngja stoltinu, hún gæti ekki staðið í þessu lengur og væri blönk. Andlitið datt af Flick og þátturinn kláraðist.

Ég held að þetta hafi verið eina vitið og kannski verður þetta til þess að Flick og Joe sættast og hún áttar sig á því að það er ekkert vit í því að 17 ára gömul stelpa sem enn er í skóla flytji að heiman… Svo áttu hún og hann þarna Hancock, Matt eða what ever, skemmtilegt samtal og hver veit nema eitthvað fari að gerjast þar meðan að Joel er ekki heima?
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _