Emily týndist í síðasta þætti og maggie var að deyja úr áhyggjum og allir í götunni voru að hjálpa til við að leita. Emily fór í einhverja rútu/strætó og fór ekki út á endastöð. Bílstjórinn fór út og læsti rútunni og tók ekki eftir að Emily varð eftir

Shena ( heitir hún það ekki? Vinnur með Dee og er hrifin af Toadie, fer allavega geðveikt í taugarnar á mér.) Hún er ofboðslega hrifin af Toadie og er alltaf að kyssa hann en hann verður þvílíkt vandræðalegur, eins og hann sé ekkert hrifinn af henni.
Það kemur hins vegar í ljós að hann er skíthræddur um að hún yfirgefi hann (kom væmnin sem leyndist undir kímninni í ljós.) en svo verður allt í lagi.

Emily svaf um nóttina í rútunni og dagin eftir þegar bílstjórinn opnaði hljóp hún út.
Foreldrar emily vilja hjálpa til við að leita af henni og banna Leo að koma með. Leo biður Michelle um peninga og það fyrst sem hún gerir er að fara heim og segist halda að hún hafi gert mistök. Emily er koin út í skóg og segir dúkkunni sinni að hvíla sig. Þá gengur björgunarliðið framhjá og Emily felur sig og segir Dúkkunni sinni að “hafa ekki hátt” því að þeir mættu ekki finna þær.