Ó, hjálp!!!!

Emily Hancock týndist í dag.

Það sem gerðist í þættinum var aðallega það að Paul og Tad voru fúlir út í Harold fyrir að vingast við aðra(r) konu(r), þeim finnst hann vera að halda framhjá Madge…
doldið barnalegt, en jæja, þeir um það.

og svo týndist Emily, eða eitthvað… Hún var að rífast við bróður sinn sem skammaði hana fyrir að týna eyrnalokkunum, gott hjá honum, kominn tími til að einhver gerði það!!
En allavega, þá stakk krakkinn af og sást ekki í einhverja 3 tíma og allir að deyja úr áhyggjum. allir nágrannarnir og fleiri til voru fengnir til að fara út og leita, oh, my gosh!

og nú er ég viss um að þeir fara að eyða nokkrum þáttum í þennan líka leiðinlega krakka…

MEST pirrandi í heimi, sko.
og pæliði í því að mamman er nógu leiðinleg fyrir hvað þá ef hún fer að grenja, þátt eftir þátt…

en allavega þá misstuð þið ekki af mjög miklu í dag…

kv. forynja
“let's build more cars so we can drive away before we choke…”