Joel bað Flick að líta ofan í boxið og hún sá að þar voru bara eyrnalokkar. Henni leið eins og algjöru fífli. Svo fóru þau að borða og þá sagði Joel að hann væri að fara í 2 vikur í einhverja fræðsluferð. Flick varð fúl því hann var bara mýkja hana fyrir fréttirnar.

Dee og Toadie láta það leka til Lyn að Joel ætli að biðja Flick. Lyn segir Joe og hann brjálast.

Darcy segir við Karl að hann geti borgað honum 100 dali í enda vikunnar fyrir tölvurnar og svo þeir geti byrjað að endurbæta stofuna. Svo fer Darcy og segir Dee að Karl sé að biðja hann um að borga sem fyrst. Dee segist eiga peninga til að lána honum.

Tess líður enn illa að hafa svikið Dee með því að kyssa Darcy og Darcy kemur á kaffistofuna þar sem Dee og Tess eru að drekka kaffi saman. Dee lánar honum peningana og Darcy segir að hann vilji bjóða henni út að borða og við Tess að þegar peningamálin væru aftur orðin góð þá gætu þau farið að sjá ballet. Tess verður ofsa skrýtin og segir nei en þegar Darcy var farinn sagði Dee að ess væri búin að vera svo skrýtin og nú þyrfti hún að sega sér hvað væri að !!!

Búið. Nú verður bara spennandi að sjá hvað Tess segir við Dee !!!