Frethaus kom með þá hugmynd að einhver ætti að segja frá því sem er að gerast í þáttunum. Þar sem ég er með stöð 2 og heima því ég er slasaður (og hef ekkert betra að gera en að láta mér leiðast) þá ákvað ég að reyna.

Í síðasta þætti ætlaði Steph að fara að sjá Woody í síðasta skipti og segja að hún geti ekki hitt hann því það er ólöglegt að rjúfa vitnaverndina. Allavega þá var einhver hvítur bíll að elta hana. Hún fylltist grunsemdum og fór inn í eitthvað rjóður og faldi sig. Svo kom maðurinn út úr bílnum og fann mótorhjólið en … engin Steph.


Þátturinn byrjar þannig að Steph er að reyna að flýja undan manninum og maðurinn svoldið á eftir henni en hún hleypur út á veg af því hún sér bíl hún hendir sér á götuna og bíllinn stoppar og maður kemur út og spyr hvort það sé allt í lagi með hana. Þá kemur maðurinn sem var að elta hana og segir að þetta sé í lagi hann taki hana með sér en þá segir Steph honum að láta sig í friði og hann fer bara.

Á meðan á þessu stendur eru foreldrar hennar með miklar áhyggjur af henni og bíða eftir símtali frá henni en Michelle er með mikklar áhyggjur af kjúklingnum sínum Joel. Svo hringir Woody og spyr hvort Steph hafi hætt við, hún hafi átt að vera komin fyrir hálftíma síðan. Lyn ætlar að farast af áhyggjum. Svo hringir Stephanie og segist vera á lögreglustöð upp í sveit. Hún var víst mjög heppin að vera ekk kærð en það myndi gerast ef hún bryti vitnaverndina aftur.

Flick er viss um að Joel ætli að biðja sín. Þau fara í heimsókn til Libby og Drew því að Joel þarf að fá hjálp með bílinn. Flick skoðar brúðarmyndirnar af þeim og talar við Libby um brúðkaup og hvað það sé mikið betra að vera giftur en bara í sambúð. Joel ætlar að bjóða Flick út að borða á Lanzini’s. rétt áður en þau fara lætur hann hana fá box (svona eins og hringir og aðrir skartgripir eru í). Flick verður yfir sig hrifin og segir að hún vilji giftast honum og að hún hafi vitað að hann ætlaði að biðja sín og áður en Joel getur sagt nokkuð er Flick búin að segja Dee og Toadie að þau ætli að giftast. Joel verður mjög vandræðalegur og segir að þau þurfi að drífa sig því þau væru að verða of sein á Lanzini’s.

Þetta var Þátturinn í dag og það verður gaman að sjá hvað er í boxinu