Libby er ólétt, Drew er ekkert smá áhyggjufullur en Libby er rosalega hamingjusöm.
Matt var að vinna á kránni og þá kom einhver gella að leita að vinnu og þau voru að daðra á fullu, þegar Lou kom þá var hann ekki að leita að fleiri starfsmönnum í augnablikinu en Matt fékk símanúmerið hjá gellunni : )
Tad og Paul eru að blekkja þessa Larissu, og ég held að þetta sé að takast hjá þeim þótt ég skilji ekki hvernig þeir nenna þessu veseni þegar hún er ekki það sæt!
Larissa kom heim til þeirra og dj draslið hans Tad lá þarna og hún bað Paul um að spila og hann varð ekkert smá vandræðalegur en Tad bjargaði þessu með því að segja að hann hefði óvart helt kaffi yfir dj draslið hans og þá þóttist Paul vera ýkt reiður !!!
Karl og susan eru að deyja úr forvitni um hvað sé að hjá Drew og Libby..þau eru líka að gefast upp á Joe sem er að gera við þakið hjá þeim!!
Jæja þetta var það eina sem skeði í þessum þætti ; )