Þetta var alls ekki spennandi þáttur..
Drew og Lou voru að gera við einhvern dýran bíl hjá mikilvægum viðskiptavin og þá kúkaði Audrey (hundurinn) í sætið og lyktin var föst…
Libby er eitthvað slöpp greyið, verður óglatt þegar hún er nálægt sumum mat, er alltaf þreitt osfrv…
Darcy og Dee eru rosa ástfanginn en Alice er að reyna að eyðileggja samband þeirra.
Leo vill ekki fara í skólann útaf leikfimikennaranum, hann segir að hann leggi sig í einelti. Pabbi hans talaði við kennarann og ég held að það verði eitthvað vesen með það því kennarinn var ekkert ánægður með að Evan væri að ásaka sig um að leggja strákinn í einelti.
Vegna þess hvað Libby er slöpp hefur hún ekkert skoðað póstinn og loksins þegar Drew fattar það þá eru 7 mínútur í eftirlit frá eiganda íbúðarinnar, þau fela allt dótið hennar Audrey og Liby fer með Audrey inní herbergi, kallinn kemur og Drew segir að Libby sé veik, en þá heyrist væl í hundinum og þátturinn er á enda.
Endilega látið mig vita ef ég gleymdi einhverju!