Mánudagurinn 13.Maí 02 Joel kom heim í dag og Flick var auðvitað rosalega spennt og hljóp í fangið á honum en þá hafði hann komið heim með stelpu sem hét Simone.

Darcy og Karl ákváðu að vinna saman á læknastofunni og láta ekki ákvarðanir hvors annars fara í taugarnar á sér. En Darcy vinnur svo allt örðuvísi en Karl að Karl er ekkert rosalega sáttur, sérstaklega þar sem kúnnarnir eru farnir að velja hann fram yfir sig.

Það var svaka óveður í bænum, en samt rosalega skrítið að alltaf þegar fólkið kom inn þá var það rosalega þurt, nema þegar Flick kom heim frá Joel þá var hún rennblaut vegna þess að hún hafði farið í göngutúr.

Dee er ekki sátt við að Simone skuli vera að sofa þarna á sínu heimili! Og þátturinn endar þannig að Joel er að kveðja Simone á kaffistofunni og kyssir hana, hún er að fara í eitthverja ferð skildist mér og Flick sér það og fer síðan og hellir séryfir Joel og segist ætla að segja henni allt hvernig henni líður, þá endar þátturinn.

Allavega er Joel orðin ömurlegur og kom ekkert smá ill fram við vesalings Flick, ég hefði allavega trompast ef ég hefði verið hún.