Þetta byrjaði þannig að þau voru að spá í múrsteininum sem flaug innum gluggan. Föttuðu strax að þetta var tengt woody. Svo komu Steph og Woody heim og þau voru nýkomin frá lögreglunni, Þau voru komin með 24/7 lögregluvernd. Alltaf óeinkennisklæddur lögreglumaður í bíl fyrir utan hjá þeim.
Og allir voru bara inni hjá sér í sjokki

Bob stal teppi sem Emily átti og hljóp með það í burtu án þess að nokkur tæki eftir því. Allt auðvitað á öðrum endanum hjá Hancock fjölskyldunni, því aumingja Emily saknar svo teppisins *æl*
Hún meirað segja hengdi upp auglýsingu!

Þjálfararnir hjá Jack hringdu og sögðu honum að ákveða hvort hann ætlaði að koma aftur eða vera þarna. Hann var eitthvað að spá í þessu.

Þátturin endaði þannig að nýja fjölskyldan var útí fótbolta og Scully fjölskyldan ákvað að fara og heilsa uppá og vera með. Allir rosa happy. Spörkuðu boltanum óvart í lögguna sem var á vaktinni og hún hló bara!

Svo kom mamma hans Matt, hún Geneviene eða hvað hún hét.. Algjört leiðindahró, setti útá allt hjá þeim og fór með Matt í bæin og vildi að hann keyfti sér eitthver föt og eitthvað. Svo voru þau á kaffistofunni og hún var að bjóða honum að fara í Matreiðsluskóla í Swiss, hún ætlaði að borga.. Þátturinn endar á því að hann er að hugsa.. Ég efast samt um að hann fari

Ef þið munið eitthvað meira, endilega segjið frá því